Sigulfjarðarseigur til Noregs

 

 

Seigur 1067 sem fer til Noregs

Á dögunum var afhentur annar plastbáturinn sem smíðaður er frá grunni í Siglufirði, fyrirtækin Siglufjarðarseigur ehf. og JE Vélaverkstæði sáu um smíðina. Kaupandi bátsins er norskur útgerðarmaður og er báturinn nú á leið til Noregs. Vegna veðurútlits á næstunni var horfið frá að sigla bátnum út en honum þess í stað siglt til Seyðisfjarðar þar sem hann verður fluttur út með Norrænu.

Nýi báturinn er 11,6 brúttó tonn að stærð. Hann er 10,65 metri á lengd og 3.3 á breidd og kallast SEIGUR 1067. Ganghraði í prufusiglingu var 29 mílur með 1315 lítra af eldsneyti og 100 lítra af neysluvatni og öllum þeim búnaði sem þarf til netaveiða. Siglingatæki og annar búnaður í honum er í mörgu svipaður og í fyrsta bátnum sem afhentur var í nóvember sl. Helsta breyting á fyrirkomulagi er að WC er haft innangengt úr stýrishúsi og einnig er sturta í sama rými.

SJØSPRØYT VA5LS - Mandal Norege.

Skrokkurinn á þessum er 0,5 m styttri til að falla að reglum varðandi smábáta í Noregi og hann verður eingöngu gerður út til netaveiða. Vélin er Volvo PentaD 12- 650 hestöfl. Siglingatæki koma frá FURUNO og OLEX. Meðal búnaðar á bátnum er svokallaður fellikjölur. Einnig 250 mm bógskrúfa tengd við sjálfstýringu sem auðveldar stjórnendum að athafna sig við veiðarfærin. Öflugir flapsar eru aftan á botni bátsins til að rétta hann af. Þá er svokallað flipastýri sem auðveldar stjórnun á bátnum sérstaklega í þröngum höfnum. Þá er í honum netaspil sem fengið var frá Danmörku og ennfremur krani sem mögulegt er að nota við löndun og verður hann einnig notaður fyrir netaniðurleggjarann þ.e. þegar verið er að draga netin verður þeim hagrætt með honum niður í kör.

Jarle Fjeldskår Lindesnes - Norskur kaupandi bátsins

Að sögn Guðna Sigtryggssonar framkvæmdastjóra JE Vélaverkstæðis var byrjað á þessum bát um leið og fyrsti báturinn fór úr húsi í nóvember. Síðan hafa unnið að jafnaði sex menn frá fyrirtækinu við bátinn auk undirverktaka, þannig sá Rafbær hf. í Siglufirði um allar raflagnir. Að sögn Guðna er stutt í að næsti bátur verði uppsteyptur og er stefnt að afhendingu á honum í lok apríl og fer hann til Hnífsdals, eigendur Davíð og Hallgrímur Kjartanssynir. Guðni segir að talsverður áhugi sé fyrir bátum sem fyrirtækið er að framleiða og nokkrir útgerðamenn að hugsa málin varðandi kaup á bátum.

Þess má geta að megin þrándur í götu þess að vera með útflutning á vöru sem þessari frá Siglufirði er flutningurinn til Noregs því það er einungis hægt að koma vörunni í skip í Reykjavík Vestmannaeyjum eða fyrir austan, Eskifirði, Reyðarfirði eða þá með Norrænu sem varð úr fyrir rest.

 

Myndir eru teknar af Steingrími Kristinssyni